Hollur og skemmtilegur skyndibiti

Smáborgarar
Smáborgarar
Hamborgarar slá alltaf í gegn en hér er uppskrift að „smáborgurum“ sem er heppilegur fingramatur.

Hamborgarar slá alltaf í gegn en hér er uppskrift að „smáborgurum“ sem er heppilegur fingramatur.

Innihald:

  • 8 stk. 40 g hamborgarar hnoðaðir úr rúmlega 300 g af hakki. Það er líka kjörið að nota kjúklingakjöt.
  • Brie-ostur, skorinn í sneiðar
  • 8 stk. lítil hamborgarabrauð eða út stungnir brauðhringir
  • 4 msk. sýrður rjómi
  • Tómatsulta eða salsa
  • Basilíkulauf
  • Salatblað, tómatur, gúrka eða paprika
  • Hamborgarakrydd
  • 4 msk. salt
  • 1 tsk. malaður svartur pipar
  • 2 stk. stjörnuanís (mulinn í mortél)
  • 1⁄4 tsk. laukduft 

Glóðarsteiktir smáborgarar:

Skiptið hakkinu í 8 jafn stórar kúlur. Fletjið hverja kúlu út á vax-pappír svo hún verði um 6 cm að þvermáli og 6 til 7 mm á þykkt. Gott er að frysta borgarana í a.m.k. klukkustund (það kemur í veg fyrir að þeir detti í sundur við steikingu). Setjið hálffrosnu borgarana á pönnuna (eða grillið). Eftir 20 sekúndur, þrýstið þeim niður með steikarspaða og kryddið. Snúið við og leggið ostsneiðar ofan á rétt í lokin. Raðið grænmeti og basilíku- laufum á borgarann ásamt sýrða rjómanum og tómatsultunni.

Brakandi hamborgarasmábrauð:

  • 200 g volgt vatn
  • 30 g smjör
  • 1 stórt egg 
  • 400 g hveiti, gott að setja smá af rúgmjöli með 50 g sykur eða pálmasykur og hunang
  • 11⁄4 tsk. salt1 matskeið þurrger
  • 40 g bráðið smjör (til að pensla fyrir bakstur

Blandið og hnoðið allt saman:

Gerið mjúkt og slétt deig. Látið hefast undir stykki í 1 til 2 klst. eða þar til deigið hefur næstum tvöfaldast. Skiptið deiginu í 8 eða 12
bita. Mótið hvert stykki í bolta, setjið á smjörpappír og látið hefast í um 1 klst. Penslið með bræddu smjöri. Bakið í bollur í forhituðum 175 °C ofni í 15 til 18 mínútur, þar til brauðið verður gullið/brúnt á litinn. Fjarlægið brauðið úr ofninum og penslið með hinum hlutanum af bræddu smjörinu. Þetta mun gefa hamborgarabrauðinu glans og raka. Kælið og framreiðið.

Verði ykkur að góðu!


Frekari upplýsingar: